Hunangskaka
Hráefni
Kakan
- 150 g hunang
- 150 g smjör
- 200 g púðursykur
- 3 egg, stór
- 250 g hveiti
- 2 tsk. lyftiduft
- 1 msk. brúnkökukrydd (blanda af kanil, negul, engifer o.fl.)
Krem
- 150 g smjör, mjúkt
- 150 g flórsykur
- 2 eggjarauður
Aðferð
Kakan
- Hitið ofninn í 175°C og smyrjið 24 cm kringlótt form (eða klæðið ferkantað form um 20 cm x 30 cm með bökunarpappír).
- Bræðið hunang og smjör saman í potti við vægan hita og látið kólna aðeins.
- Þeytið púðursykur og egg saman þar til ljóst og létt.
- Hrærið hunangsblöndunni saman við eggjablönduna. Blandið hveiti, lyftidufti og brúnkökukryddi saman og hrærið varlega út í.
- Hellið deiginu í formið og bakið í um 35–45 mínútur, þar til prjónn sem stungið er í miðjuna kemur hreinn upp. Látið kólna alveg.
Krem
- Þeytið mjúkt smjör og flórsykur saman þar til létt og ljóst, bætið eggjarauðunum út í og þeytið vel. Smyrjið kreminu á kalda kökuna.
Eins og hún skrifaði það

Hunangskaka
150 gr. hunang - 150 gr. smjör
200 gr. púðursykur - 3 stór egg
250 gr. hveiti - 2 tsk. lyftiduft
1 msk. brúnkökukrydd
Krem:
150 gr. smjör - 150 gr. flórsykur
2 eggjarauður