Meðlæti, sósur og sultur

Hrásalat

Hráefni

  • ½ hvítkálshöfuð, fínt skorið
  • 2–3 gulrætur, góðar, rifnar
  • ½ rauðlaukur, frekar lítill, fínt saxaður
  • 3 msk. majónes
  • 3 msk. sýrður rjómi (18% eða fituminni)
  • salt
  • hvítur pipar
  • 1 msk. hvítvínsedik
  • 1 msk. erythritol (sykurlaust sætuefni; má nota sykur)
  • smá sítrónusafi (má sleppa)

Aðferð

  1. Skerið hvítkálið mjög fínt, rífið gulræturnar og saxið rauðlaukinn smátt. Setjið í skál.
  2. Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma, hvítvínsediki og erythritoli og kryddið með salti og hvítum pipar.
  3. Bætið við smá skvettu af sítrónusafa ef vill.
  4. Blandið sósunni saman við grænmetið og smakkið til. Gott er að láta salatið standa í kæli í hálftíma áður en það er borið fram.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Hrásalatið
1/2 hvítkálshöfuð 2-3 góðar gulrætur 1/2 lítill rauðlaukur (frekar lítill) 3 msk majó 3 msk sýrður rjómi 18% eða minna Salt - hvítur pipar 1 msk hvítvínsedik 1 msk erythritol.
Ég læt snettu af sítrónusafa