Hollenskar pönnukökur
Hráefni
- 100 g bókhveiti
- 300 g hveiti
- 7 dl mjólk
- 4 egg
- 1 msk. sykur
- smá salt
Aðferð
- Blandið bókhveiti, hveiti, sykri og salti saman. Pískið eggin og mjólkina út í smátt og smátt þar til deigið er kekkjalaust.
- Hitið pönnu á hita 5 á hellunni.
- Smyrjið pönnuna létt, hellið þunnu lagi af deigi yfir allan botninn og steikið þar til kakan er gullin á báðum hliðum.
Eins og hún skrifaði það

Hollenskar pönnukökur
100gr. Bokhveiti - 300gr. hveiti
7dl. mjólk - 4egg
1msk. sykur - Smá salt
Hiti 5.