Hnoðuð lagkaka
- Frá
- Edda
- Ofnhiti
- 200 °C
Hráefni
Kakan
- 1 kg hveiti
- 300 g smjör, mjúkt
- 300 g sykur
- 1 dós síróp, lítil dós (ljóst síróp, t.d. Lyle's)
- 5 tsk. negull
- 1½ tsk. matarsódi
- 5 tsk. kanill
- 3 tsk. engifer
- 3 tsk. lyftiduft
- 1½ tsk. anís
- 2½ kúfuð msk. kakó
- 3 egg
Krem
- 375 g smjör, mjúkt
- 1125 g flórsykur
- 2 egg
- 6 tsk. vanilludropar
Aðferð
Kakan
- Hrærið smjör, sykur og síróp saman og hrærið eggin saman við. Blandið þurrefnunum saman og hnoðið þau upp í deigið þar til það er slétt og þétt.
- Pakkið deiginu inn í plast og geymið það í ísskáp í minnst sólarhring.
- Hitið ofninn í 200°C. Skiptið deiginu í fjóra hluta og fletjið hvern út á bökunarpappír í jafna plötu.
- Bakið hverja plötu við 200°C í um 10–12 mínútur.
- Látið botnana kólna alveg.
Krem
- Þeytið mjúkt smjörið og flórsykurinn saman, bætið eggjunum og vanilludropunum út í og þeytið þar til kremið er létt og slétt.
- Smyrjið kreminu á milli botnanna og leggið þá hvern ofan á annan. Pakkið kökunni inn og látið hana standa í kæli í sólarhring áður en hún er skorin.
Eins og hún skrifaði það

Hnoðuð lagkaka
(Edda)
1kg. hveiti — 300gr. smjör
300gr. sykur — 1 lítil dós sýróp
5 tsk. negull — 1 1/2 tsk. natron
5 tsk. kanill — 3 tsk. engifer
3 tsk. lyftiduft — 1 1/2 tsk. anís
2 1/2 kúf. mtsk. kakó — 3 egg.
Geyma minnst sólarhring í
ísskáp.
Baka ca. 10-12 min. 200°C.
(Skipt á 4plötur)
KRem:
375gr. smjör — 1,125gr. flórsykur
2 egg — 6 tsk. Vanilludropar