Kökur og tertur

Hjónabandssæla

Ofnhiti
190 °C
Form
22 cm

Hráefni

  • 360 g smjör, mjúkt
  • 300 g sykur
  • 420 g hveiti
  • 225 g haframjöl
  • 1½ tsk. matarsódi
  • 1 egg
  • ca. 240 g sulta („++“: gjarnan aðeins meira; rabarbarasulta er hefðbundin.)

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 190°C og smyrjið formin.
  2. Blandið hveiti, haframjöli, sykri og matarsóda saman. Myljið eða hnoðið smjörið og eggið saman við í mylsnukennt deig.
  3. Þrýstið deigi í botninn á forminu: um 350 g í 20 cm form eða um 550 g í 24 cm form. Best er að nota tvö 22 cm form.
  4. Smyrjið sultunni (um 240 g) yfir botninn og dreifið svo um 240 g af deigi í litlum klöttum ofan á.
  5. Bakið við 190°C í um 55 mínútur á næstneðstu grind.
  6. Takið kökuna úr forminu eftir 10 mínútur.

Athugasemdir

  • Notið K-ið (flata hrærarann) á hrærivélinni, ekki þeytarann.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Hjónabandssæla.
Taka úr formi eftir 10 min.
360gr. smjör — 300gr. sykur 420gr. Hveiti - 225gr. Haframjöl 1 1/2 tsk. natron - 1 egg ca. 240gr. sulta ++ Sulta + deigklattar efst.
190°C. ca. 55min. í næst neðstu Rim. 240 deig ofaná 1x20cm. form (350gr) … deig í botn 1x24cm. -"- (550gr) … Best 2x22cm. / sinnum einf. (eða þykktin) á hæðina.