Kökur og tertur

Haframjölskaka

Ofnhiti
200 °C
Form
24 cm

Hráefni

  • 2 bollar haframjöl
  • 1 egg
  • 300 g smjör, mjúkt
  • 2 bollar hveiti
  • ¼ tsk. matarsódi
  • 1 bolli sykur
  • ½ tsk. lyftiduft
  • sulta

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C og smyrjið tvö 24 cm kringlótt form.
  2. Hrærið sykur og smjör saman þar til létt og ljóst.
  3. Hrærið svo eggið saman við.
  4. Blandið síðan öllum þurrefnunum (haframjöli, hveiti, matarsóda og lyftidufti) saman við.
  5. Skiptið deiginu í formin tvö og þrýstið því jafnt út.
  6. Bakið við 200°C í 30 mínútur. Látið kólna.
  7. Leggið botnana saman með sultu á milli.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Haframjölskaka
2 b. haframjöl - 1 egg - 300 gr. smjör 2 b. hveiti - 1/4 tsk. natron 1 b. sykur - 1/2 tsk. lyftiduft
Sykur + smjör svo egg síðan allt þurrefni. Bakað í 2 Ø 24 cm. 200°c í 30 min. Sett saman með sultu.