Kökur og tertur

Gulrótarkaka

Frá
Gunnhildur
Ofnhiti
180 °C

Hráefni

Kakan

  • 300 g hveiti (5 dl)
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1½ tsk. matarsódi
  • 1 tsk. salt
  • 2 tsk. kanill (um 4 g)
  • 1 tsk. múskat
  • 300 g sykur
  • 2 dl olía (190 g)
  • 4 egg
  • 5 dl gulrætur, rifnar (350 g)
  • 250 g valhnetur, saxaðar

Krem

  • 1 askja rjómaostur (stór askja, 400 g)
  • 200 g flórsykur
  • 2–3 tsk. vanilludropar
  • ½ sítróna, safinn

Aðferð

Kakan

  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið stórt form (t.d. 26 cm smelluform eða skúffu um 23 cm x 33 cm).
  2. Þeytið egg og sykur saman og hrærið olíunni út í.
  3. Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti, kanil og múskati saman og hrærið út í.
  4. Blandið rifnum gulrótum og söxuðum valhnetum saman við og setjið deigið í formið.
  5. Bakið við 180°C í 1 klukkustund á neðstu rim. Látið kökuna kólna alveg áður en kremið er sett á.

Krem

  1. Þeytið rjómaost, flórsykur, vanillu og sítrónusafa saman og smakkið til. Smyrjið kreminu á kalda kökuna.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Gulrótarkaka
(Gunnhildur
5 dl. 300 gr. hveiti - 2 tsk. Lyftid. 1 1/2 tsk. natron - 1 tsk. salt 2 tsk. -4gr. kanill - 1 tsk. múskat 300 gr. sykur - 2 dl. 190 gr olía 4 egg - 5 dl. (350 gr.) gulrætur + 250 gr. hnetur (valhnetur)
Bak. 1 klst. 180°C neðst
Krem: 1 stór (400 gr) askja Rjómaostur 200 gr. flórsykur - 2-3 tsk. vanilla safi úr 1/2 sítr. smakka til