Gúllassúpa
- Frá
- Ásta
Hráefni
- 2 l súpukraftur (soð)
- 6–8 nautakraftsteningar
- ½ l rjómi
- ½ kg nautahakk
- ca. 1 l vatn
- salt
- paprikuduft
- ½ sæt kartafla, stór, skorin í bita
- 8 sellerýstilkar, góðir, skornir í bita
- 2 laukar, stórir, saxaðir
- 6 gulrætur, góðar, skornar í bita
- 1 sellerírót, afhýdd og skorin í bita
Aðferð
- Brúnið nautahakkið í stórum potti og bætið lauknum út í þegar hakkið er farið að brúnast. Kryddið vel með paprikudufti.
- Bætið soðinu, vatninu og kraftteningunum út í og síðan öllu grænmetinu.
- Látið malla undir loki í um 30–40 mínútur, þar til grænmetið er mjúkt.
- Hellið rjómanum út í, hitið að suðu og smakkið til með salti.
Eins og hún skrifaði það

Gúllassúpa
(Ásta)
2L. súpukraftur
6-8 ten. nauta + 1/2 L. Rjómi
1/2 kg. nauta hakk.
ca. 1L. vatn + salt papr. duft
1/2 stór sæt kartafla
8 góðir sellerýstilkar
2 stórir laukar
6 góðar gulrætur
1 sellerírót