Grautarlummur
Hráefni
- 600 g grautur (afgangs grjónagrautur)
- 65 g sykur
- 2 egg
- 250–300 g hveiti
- 3 dl mjólk
- ca. 1 tsk. sítrónudropar (Á blaðinu: 3–4 tappar (í stað 12 sítrónudropa sem eru strikaðir út).)
Aðferð
- Hrærið grautinn, sykurinn og eggin vel saman.
- Bætið hveiti og mjólk út í til skiptis og hrærið í þykkt deig; notið 250–300 g hveiti eftir þykkt grautsins. Bætið sítrónudropunum út í.
- Hitið pönnu á hita 8 á hellunni og smyrjið hana létt.
- Setjið deigið á pönnuna með matskeið og steikið lummurnar á báðum hliðum þar til þær eru ljósbrúnar.
Eins og hún skrifaði það

Grautarlummur.
Hiti 8
600gr. grautur — 65gr. sykur
2 egg - 250/300gr. Hveiti
3dl. mjólk. — 12 sítrónudr. → 3-4 tappar