Gamaldags eplaskífur
Hráefni
- 2 egg
- ⅓ bolli sykur
- 1 tsk. lyftiduft
- 1⅓ bollar hveiti
- ¾ bolli mjólk
- ½ tsk. salt
- 2 msk. smjör, brætt
- 1 tsk. kardimommudropar
- sítrónusafi og rifinn sítrónubörkur (má sleppa) (Í stað kardimommudropa.)
- epli, í litlum bitum
Aðferð
- Þeytið egg, sykur og mjólk vel saman.
- Bætið síðan þurrefnunum og brædda smjörinu út í (og kardimommudropunum, eða sítrónusafa og rifnum berki) og hrærið vel saman.
- Hitið eplaskífupönnu og smyrjið hverja holu með smjöri. Fyllið holurnar um ⅔.
- Stingið eplabita ofan í hverja eplaskífu á pönnunni.
- Snúið eplaskífunum með prjóni þegar botninn hefur stífnað og bakið þar til þær eru gullinbrúnar allan hringinn.
- Berið fram með flórsykri (og sultu).
Eins og hún skrifaði það

Gamaldags eplaskífur
2 egg - 1/3 b. sykur - 1 tsk. lyftiduft
1 1/3 b. hveiti - 3/4 b. mjólk - 1/2 tsk. salt
2 msk. br. smjör - 1 tsk. kardimdr. (eða
safi + rif. börk af sítr.)
Egg + sykur + mjólk þeytt vel síðan
þurrefnin + br. smjör. Hræra vel
saman (Stinga eplabita í á pönnunni)
Borið fram með flórs. (sultu)