Brauð og bakstur

Fullkomnar enskar skonsur

Frá
Cupcake Jemma

Hráefni

  • 500 g hveiti
  • 2 msk. sykur
  • 2 kúfuð tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. salt
  • 110 g smjör, kalt, í teningum
  • 300 ml mjólk

Aðferð

  1. Setjið þurrefnin í matvinnsluvél ásamt köldu smjörteningunum og látið vélina ganga í stuttum lotum þar til blandan er eins og brauðmylsna.
  2. Setjið blönduna í skál, gerið holu í miðjuna og hellið mjólkinni út í.
  3. Blandið saman með gaffli og síðan með höndunum, rétt þar til deigið loðir saman.
  4. Fletjið deigið út í um 3 cm þykkt.
  5. Hitið ofninn í 220°C. Stingið út kringlóttar skonsur, um 6 cm í þvermál, og raðið á plötu með bökunarpappír.
  6. Penslið með þeyttu eggi.
  7. Bakið í 12–15 mínútur, þar til skonsurnar eru vel lyftar og gullinbrúnar.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
(Cup. Jemma)
Perfect english skones.
500 gr. hveiti - 2 tbsp. sykur 2 tsp. kúf. baking powder. 1 tsp. salt
Allt sett í mixer + 110 gr. kaldir smjörteningar sett í skál búa til holu og hella 300 ml. mjólk útí. Blanda saman m/gaffli svo með höndunum. Flatt út í ca. 3 cm. þ. Pensla m/eggi