Brauð og bakstur

Focacciabrauð

Ofnhiti
220 °C

Hráefni

  • 500 g hveiti
  • 500 g durummjöl (semolíuhveiti) („(semolíuhveiti)“ skrifað við titilinn)
  • 2 msk. þurrger
  • 30 g salt
  • 30 g hunang
  • 110 g smjör, brætt
  • 665 ml mjólk, volg

Aðferð

  1. Volgið mjólkina og hrærið hunanginu og gerinu út í. Blandið hveiti, durummjöli og salti saman í skál, hellið mjólkurblöndunni og brædda smjörinu út í og hnoðið í mjúkt, teygjanlegt deig.
  2. Látið hefast í 60 mínútur.
  3. Setjið deigið á smurða ofnplötu og þrýstið því út með fingrunum.
  4. Látið hefast í um 1 klukkustund. Hitið ofninn í 220°C.
  5. Bakið við 220°C í um 25 mínútur, þar til brauðið er gullinbrúnt.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Focacciabrauð.
(semolíuhveiti)
500 gr. hveiti - 500 gr. Durummjöl 2 msk. ger - 30 gr. salt - 30 gr. hunang 110 gr. br. smjör 665 ml. mjólk
+ hunang sett útí Hefast í 60 min. Sett á plötu, hefast í ca 1 klst. 220°c. í ca. 25 min.