Eftirréttir

Flórsykurmarengs

Ofnhiti
130 °C

Hráefni

Marengsinn

  • 8 eggjahvítur
  • 400 g flórsykur
  • 100 g döðlur, saxaðar
  • 100 g súkkulaði, saxað

Á milli

  • ½ l rjómi
  • 3–4 bananar

Aðferð

Marengsinn

  1. Hitið ofninn í 130°C. Teiknið tvo hringi (um 24 cm) á bökunarpappír á tveimur plötum.
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar og flórsykurinn saman. Blandið söxuðum döðlum og súkkulaði varlega saman við.
  3. Skiptið marengsinum á hringina tvo og sléttið úr honum.
  4. Bakið við 130°C í um 60 mínútur í næstneðstu rim.
  5. Marengsinn á að verða ljósbrúnn. Látið hann kólna alveg.

Á milli

  1. Þeytið rjómann og skerið bananana í sneiðar. Setjið rjóma og banana á milli marengsbotnanna.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Flórsykurmarengs
8 eggjahvítur - 400gr. flórsykur 100gr. döðlur - 100gr. súkkul. Á milli + 1/2 l. Rjómi og 3-4 bananar
130°c. ca. 60 min. næst neðstu Rim Bakist ljósbrúnn.