Eftirréttir

Flórsykurmarengs Elsu

Frá
Elsa
Ofnhiti
130 °C

Hráefni

Marengsinn

  • 4 eggjahvítur
  • 200 g flórsykur
  • 50 g döðlur, smátt saxaðar
  • 50 g súkkulaði, smátt saxað

Fyllingin

  • 1½ peli rjómi (Peli er um 2,5 dl.)
  • 2 bananar, sneiddir

Aðferð

Marengsinn

  1. Hitið ofninn í 130°C. Leggið bökunarpappír á tvær plötur og teiknið á hvorn hring, um 22 cm í þvermál.
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið flórsykrinum smátt og smátt út í. Þeytið þar til marengsinn er stífur og gljáandi.
  3. Blandið söxuðum döðlum og súkkulaði varlega saman við og skiptið marengsinum á hringina tvo.
  4. Bakið við 130°C í um 45 mínútur í miðjum ofni.
  5. Marengsinn á að verða gulbrúnn.
  6. Látið botnana kólna alveg.

Fyllingin

  1. Þeytið rjómann og skerið bananana í sneiðar.
  2. Setjið rjóma og banana á milli botnanna.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Flórsykurmarengs
(Elsa)
4eggjahvítur - 200gr. flórsykur 50gr. Döðlur — 50gr. súkkul. 1 1/2 peli Rjómi og 2 bananar sett á milli
130°C, ca.45 min. miðjum ofni Bakist gulbrúnn.