Brauð og bakstur

Fjölkorna súrdeigsbrauð

Ofnhiti
240 °C

Hráefni

  • 1 kg mjöl (Spurningarmerkin eru höfundar; tegund mjöls er ekki tilgreind.)
  • 150 g allskonar korn og fræ
  • 650 g vatn, volgt
  • 20 g salt
  • 2 msk. hunang
  • 200 g súrdeigsgrunnur

Aðferð

  1. Hrærið súrnum og hunanginu út í vatnið. Bætið mjölinu og korninu út í og blandið saman. Látið standa í 30 mínútur, bætið svo saltinu út í og hnoðið vel.
  2. Látið deigið hefast undir plasti í 4–5 klukkustundir og teygið það og brjótið saman nokkrum sinnum fyrstu 2 tímana.
  3. Mótið brauðið, setjið það í hefunarkörfu eða skál með hveitistráðu viskastykki og látið hefast í kæli yfir nótt.
  4. Hitið ofninn í 275°C með steypujárnspotti með loki inni í.
  5. Hvolfið brauðinu í heitan pottinn, setjið lokið á og inn í ofninn. Lækkið strax í 240°C og bakið í 25 mínútur.
  6. Takið lokið af og bakið í um 35 mínútur í viðbót.
  7. Látið brauðið kólna á grind áður en það er skorið.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Fjölkorna súrdeigsbrauð.
1kg. mjöl ??— 150 gr. allsk. korn 650 gr. vatn — 20 gr. salt 2 msk. hunang — 200 gr. súr
275°C lækka strax í 240°C í 25 mín. Taka lokið af og baka í ca. 35 mín.