Ensk jólakaka
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
- 375 g smjör, mjúkt
- 375 g sykur
- 375 g hveiti
- 7 egg, stór
- 1 pakki sykraður appelsínubörkur
- 100 g rúsínur
- 150 g kúrenur
- 100 g súkkat
- ca. 15 kokteilber
- 1 bolli döðlur, saxaðar
- 150 g súkkulaði, saxað
- 3 dl möndlur, saxaðar (Höfundur setti spurningarmerki á spássíuna við möndlurnar.)
- 1 tsk. lyftiduft
- 3 dl sérrí
Aðferð
- Leggið alla ávextina (appelsínubörk, rúsínur, kúrenur, súkkat, kokteilber og döðlur) í bleyti í sérríinu yfir nótt, minnst.
- Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið 2 aflöng form og klæðið þau bökunarpappír.
- Hrærið smjör og sykur saman þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum út í, einu í einu. Blandið hveiti og lyftidufti saman við og síðan ávöxtunum, súkkulaðinu og möndlunum.
- Skiptið deiginu í formin tvö.
- Bakið við 180°C í 110 mínútur, eða lengur ef þarf (höfundur setti spurningarmerki við tímann).
Athugasemdir
- Ekki of mikinn vökva með ávöxtunum.
- Rúmlega ein og hálf uppskrift fer í brúnu formin, auk eins litla formsins án möndla (hneta).
Eins og hún skrifaði það

Ensk jólakaka.
375gr. smjör - 375gr. sykur - 375gr. hveiti
7 stór egg - 1 pk. appelsínubörkur
100gr. Rúsínur - 150gr. kúrenur
100gr. súkkat - ca. 15 koktailber
1 b. Döðlur - 150gr. súkkul.
? 3 dl. möndlur - 1 tsk. lyftiduft
3 dl. sherry. Rúml. 1 1/2 í brúnu formin Rúm
+ 1 litla formið án möndl(hnet)
Sett í 2 aflöng mót. Allir ávextir
lagðir í sherrybl. yfir nótt minnst.
180°c. 110 min + ? Ekki vökva of mikið af ávexti