Smákökur

Ekta amerískar súkkulaðibitakökur

Ofnhiti
180 °C

Hráefni

  • 60 g 70% súkkulaði
  • 150 g Siríus Konsum-súkkulaði (suðusúkkulaði)
  • 80 g smjör
  • 50 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 2 egg, meðalstór
  • 150 g sykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 200 g Siríus Konsum-súkkulaði, saxað

Aðferð

  1. Bræðið báðar tegundir súkkulaðis (70% og 150 g Konsum) og smjörið saman í potti við vægan hita.
  2. Þeytið egg og sykur vel saman.
  3. Blandið súkkulaðiblöndunni, vanilludropunum og eggjablöndunni vel saman með sleikju.
  4. Blandið hveiti og lyftidufti saman og hrærið varlega út í.
  5. Bætið síðast saxaða súkkulaðinu út í.
  6. Setjið deigið með skeið á plötu klædda bökunarpappír, 4×4 kökur á plötu.
  7. Bakið á þriðju rim neðan frá við 180°C í 11–12 mínútur.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Ekta amerískar súkkul.bitakökur
60 gr. 70% súkkul. - 150 gr. Siríus Konsum 80 gr. smjör -> allt br. saman í potti 50 gr. hveiti - 1 tsk. lyftiduft 2 meðalstór egg - 150 gr. sykur 1 tsk. vanilludr. - 200 gr. sax Siríus Konsum
Báðar teg. súkkul. + smjör brætt egg + sykur þeytt vel -> súkkul. bl. + dropar + eggjabl. blandað vel saman með sleikju og síðast sax. súkkul. 4x4 á plötuna 3ja Rim neðanfrá 180°C í 11-12. mín.