Kökur og tertur

Djöflaterta

Ofnhiti
175 °C
Form
22 cm

Hráefni

Kakan

  • 130 g olía
  • 3 egg
  • 230 g súrmjólk
  • 360 g sykur
  • 1¾ dl kakó
  • 4¾ dl hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1½ tsk. matarsódi
  • 1 tsk. salt
  • 1¼ dl kaffi, mjög sterkt, heitt

Krem

  • 400 g smjör, mjúkt
  • 200 g rjómaostur
  • 600 g flórsykur
  • 100 g kakó
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 1 dl kaffi, mjög sterkt, kælt

Aðferð

Kakan

  1. Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið 22 cm form og klæðið botninn með bökunarpappír.
  2. Pískið olíu, egg, súrmjólk og sykur saman.
  3. Sigtið kakó, hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt út í og hrærið saman. Hrærið að lokum heitu kaffinu út í; deigið verður þunnt.
  4. Hellið deiginu í formið og bakið við 175°C í um 40 mínútur. Látið kólna alveg.

Krem

  1. Hrærið smjör og rjómaost vel saman.
  2. Bætið síðan restinni út í (flórsykri, kakói, vanilludropum og kaffi) og þeytið þar til kremið er slétt.
  3. Skerið kökuna í tvennt þversum ef vill, setjið krem á milli og smyrjið því yfir og utan á kökuna.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Djöflaterta.
130 gr. olía 3 stk egg 230 gr. súrmjólk 360 gr sykur 1 3/4 dl. kakó 4 3/4 dl. hveiti 2 tsk. lyftid. 1 1/2 tsk. matarsódi 1 tsk. salt 1 1/4 dl. mjög sterkt kaffi
175°C í ca: 40 min í 22 cm. formi
Krem: 400 gr smjör 200 gr Rjómaostur 600 gr flórsykur 100 gr. Kakó 2 tsk. Vanilludr. 1 dl. mjög sterkt kaffi
smjör + R. ostur hrært vel sam. síðan Restin