Daimterta
- Frá
- Hjödda
- Ofnhiti
- 150 °C
Hráefni
Botninn
- 3 eggjahvítur
- 2 dl sykur
- 1 dl hnetur, saxaðar
Ofan á
- ½ l rjómi, þeyttur
- 3 eggjarauður
- 100 g sykur
- 4–5 matarlímsblöð
- 1 dl kaffi, heitt
- 5 lítil Daim-súkkulaði, brytjuð (Daim er sænskt súkkulaðihúðað möndlukaramellustykki.)
Aðferð
Botninn
- Hitið ofninn í 150°C. Teiknið hring (um 24 cm) á bökunarpappír á plötu.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og sykurinn.
- Blandið söxuðu hnetunum varlega saman við.
- Smyrjið marengsinum í einn botn (eða tvo litla) og bakið við 150°C í um 45 mínútur. Látið kólna.
Ofan á
- Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn vel saman.
- Blandið þeytta rjómanum varlega saman við.
- Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur, kreistið vatnið úr þeim og leysið þau upp í 1 dl af heitu kaffi. Látið kólna þar til það er volgt.
- Hrærið kaffinu saman við rjómablönduna.
- Brytjið Daim-súkkulaðið og blandið því saman við.
- Látið blönduna þykkna aðeins (t.d. í kæli).
Samsetning
- Setjið botninn á tertudisk.
- Klippið út plastrenning (t.d. úr bökunarplasti) og setjið hann utan um botninn sem kraga.
- Hellið Daim-blöndunni yfir botninn.
- Setjið kökuna í frysti.
- Takið kökuna úr frystinum um 2 klukkustundum áður en hún er borin fram.
Athugasemdir
- Borin fram með rjóma.
Eins og hún skrifaði það

Dajmterta
(Hjödda)
3 eggjahv. - 2 dl. sykur > Stífþeytt
1 dl. sax. hnetur bl. varlega saman
1 botn, 150°C, ca. 45 min (2 litlir)
ofaná:
1/2 l. þeyttur Rjómi
3 eggjar. + 100gr. sykur þeytt vel sam.
þeytt Rjóma bl. varl. saman.
4-5 matarlímsblöð -> 1 dl. Kaffi
kælt og öllu bl. saman.
5 lítil Dajm brytuð útí. Láta
þykkna.
Botn settur á disk,
klippa út plast sem er sett innan á utan
hliðar um botn. Dajmbl. hellt
yfir. Sett í frysti. Tekin út
ca. 2 klst. fyrir notkun.
Borin fram með Rjóma