Brún kryddkaka með smjörkremi
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
Kakan
- 165 g sykur
- 330 g smjör, mjúkt
- 165 g púðursykur
- 330 g hveiti
- 4–5 egg
- 1½ tsk. negull
- 3 tsk. kanill
- 1½ tsk. matarsódi
Krem
- 150 g smjör, mjúkt
- 210 g flórsykur
- 3 eggjarauður
- 5 tsk. vanilludropar
Aðferð
Kakan
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið formin.
- Hrærið smjör, sykur og púðursykur saman þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli.
- Blandið hveiti, negul, kanil og matarsóda saman og hrærið varlega út í.
- Setjið deigið í 2 stór hringlaga form, eða 3 minni, 20–22 cm.
- Bakið við 180°C í um 45 mínútur.
- Látið botnana kólna alveg áður en kremið er sett á.
Krem
- Þeytið smjörið og flórsykurinn saman. Bætið eggjarauðunum út í, einni í einu, og síðan vanilludropunum og þeytið þar til kremið er létt og slétt.
- Setjið kremið á milli botnanna og ofan á kökuna.
Athugasemdir
- Óljós minnispunktur á spássíu, líklega um þyngd forms og deigs.
Eins og hún skrifaði það

Brún kryddkaka m/smjörkremi.
165gr. sykur — 330gr. smjör
165gr. púðursykur — 330gr. hveiti
4-5 egg — 1 1/2 tsk. negull
3tsk. kanill — 1 1/2 tsk. natron
sett í 2 stór Ø form. Eða = 3 minni
20 - 22 cm.
180°c í ca. 45 min
(form nr. 3 aoo með formi ⇒ 1092
ca. 650 m. formi)
Krem:
150 gr. smjör —
150gr. sykur — 210gr. flórsykur
3eggjarauður — 5 tsk. Vanilludr