Aðalréttir

Barbecue-kjúklingur

Frá
Kristjana
Ofnhiti
180 °C

Hráefni

  • 2 kjúklingar, í bitum
  • 1 dl sojasósa
  • 2 dl apríkósumarmelaði
  • 2 dl barbecue-sósa (Hunt's Original barbecue-sósa.)
  • 1 peli rjómi (Peli er gömul mælieining, um ¼ lítri.)
  • 100 g púðursykur
  • 50 g smjör

Aðferð

  1. Setjið allt nema kjúklinginn í pott og látið malla í smástund.
  2. Raðið kjúklingabitunum í eldfast mót og hellið sósunni yfir.
  3. Bakið í ofni við 180°C í um 1 klst. og 15 mínútur.

Athugasemdir

  • Borið fram með hrísgrjónum, salati og brauði.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Hrásalat, kartöflur og sulta.
Barbeque kjúkl.
(Kristjana
2 kjúkl. í bitum - 1dl. sojasósa 2dl. abrikósumarm. 2 dl. B.B. huntssósa Originale 1peli Rjómi - 100gr. púðursykur 50gr. smjör.
Allt sett í pott, mallað. Hellt yfir kjúkl. í eldf. móti. Sett í ofn í ca. 1klst + 15min 180°C. Hrísgrjón + salat + brauð borðað með