Bántíkaka
- Ofnhiti
- 180 °C
Hráefni
Botninn
- 4 eggjahvítur
- 200 g sykur
- 200 g kókosmjöl
Krem
- 200 g súkkulaði (suðusúkkulaði)
- 75 g smjör
- 4 eggjarauður
- 75 g flórsykur
- rúmlega 1 tappi vanilludropar
Aðferð
Botninn
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eitt hringlaga form eða klæðið það bökunarpappír.
- Þeytið eggjahvíturnar og sykurinn vel saman, þar til marengsinn er stífur.
- Blandið kókosmjölinu varlega saman við.
- Bakið í einu hringlaga formi við 180°C í um 20 mínútur.
- Látið botninn kólna.
Krem
- Bræðið smjörið og súkkulaðið saman og þeytið vel.
- Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn vel saman og blandið svo öllu saman, ásamt vanilludropunum.
- Smyrjið kreminu yfir botninn.
Eins og hún skrifaði það

Bántíkaka.
4eggjahvítur + 200gr. sykur) þeytt vel saman.
200gr. Kókosmjöl.
Bakist í 1Ø formi
180°C ca. 20min.
KRem:
200gr. súkkul. — 75gr. smjör
4eggjarauður — 75gr. flórsykur
Rúml. 1tappi vanilludr.
BR. smjör + súkkul.) þeyta vel.
Rauður + flórs. þeytt vel sm. bl. öllu sm.