Kökur og tertur

Baby Ruths

Frá
Heiðar Örn
Ofnhiti
185 °C

Hráefni

Kakan

  • 4 eggjahvítur
  • 220 g sykur
  • 28 Ritz-kex
  • 140 g salthnetur
  • 1½ tsk. lyftiduft

Súkkulaðikrem

  • 3 eggjarauður
  • 100 g smjör
  • 30 g flórsykur
  • 130 g Síríus konsum-súkkulaði, brætt (Síríus konsum er íslenskt suðusúkkulaði.)

Aðferð

Kakan

  1. Hitið ofninn í 185°C og smyrjið form eða klæðið það bökunarpappír.
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar og sykurinn.
  3. Myljið Ritz-kexið og salthneturnar í matvinnsluvél og blandið lyftiduftinu saman við.
  4. Blandið þessu varlega saman við eggjahvíturnar.
  5. Bakið við 185°C í um 25 mínútur.
  6. Látið kökuna kólna.

Súkkulaðikrem

  1. Bræðið súkkulaðið og smjörið saman og látið kólna aðeins. Þeytið eggjarauðurnar og flórsykurinn vel saman og blandið súkkulaðinu saman við.
  2. Hellið kreminu yfir kökuna.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Baby Ruths
(Heiðar)
4eggjahvítur + 220gr. sykur) Stífþeytt 28 Ritzkex + 140gr. salthnetur) Sett í Múli 1 1/2 tsk. lyftid
Bl. varl. saman. Bakað 185°c. í ca. 25min.
Súkkul. KRem: 3eggjarauður — 100gr. smjör 30gr. flósykur — 130gr. Sirius konsum, BR…
Hellt yfir kökuna.