Brauð og bakstur

Afmæliskringla

Ofnhiti
200–225 °C

Hráefni

Deig

  • 50 g ferskt ger (eða um 17 g þurrger)
  • 1 msk. vatn, volgt
  • 2 egg
  • 300 g hveiti
  • smá salt
  • 50 g sykur
  • 200 g smjör, kalt

Fylling

  • 75 g smjör, mjúkt
  • 75 g sykur
  • 50 g rúsínur
  • 50 g súkkat, smátt saxað
  • 50 g makkarónur, muldar (stökkar möndlukökur)

Aðferð

  1. Leysið gerið upp í volga vatninu. Blandið hveiti, sykri og salti saman í skál og myljið kalt smjörið saman við með fingurgómunum (eða í matvinnsluvél) þar til blandan er eins og gróf mylsna. Þeytið eggin létt og takið smávegis frá til að pensla með. Bætið gerblöndunni og eggjunum út í og hnoðið rétt saman í mjúkt deig. Kælið deigið í um 15 mínútur.
  2. Hrærið mjúkt smjörið og sykurinn í fyllinguna saman. Fletjið deigið út í langa lengju, um 15 cm × 70 cm. Smyrjið fyllingunni eftir miðri lengjunni og stráið rúsínum, súkkati og muldum makkarónum yfir. Brjótið hliðarnar yfir fyllinguna, leggið lengjuna á plötu með bökunarpappír, samskeytin niður, og mótið hana í kringlu.
  3. Látið hefast í 45 mínútur.
  4. Penslið með eggi og stráið sykri og söxuðum hnetum yfir.
  5. Látið hefast aftur í um 45 mínútur. Hitið ofninn í 200–225°C á meðan.
  6. Bakið við 200–225°C í um 15 mínútur, þar til kringlan er gullinbrún.

Eins og hún skrifaði það

Síðan hennar í uppskriftabókinni
Fødselsdagskringle
50 gr. ger - 1 msk. volgt vatn 2 egg - 300 gr. hveiti - smá salt 50 gr. sykur - 200 gr. smjör
Fylling: 75 gr. smjör 75 gr. sykur - 50 gr. Rúsínur 50 gr. súkkat - 50 gr. makkarónur
Hefast í 45 min. Pensla m/eggi og sykri + hnetum stráð yfir. Hefast aftur í ca. 45 min. Bakað 200-225°C í ca. 15 min.